Sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptar viðbyggingar við vestur- og suðurhlið hússins á lóð nr. 22 við Sogaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. apríl 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. apríl 2014. Fyrirspurn BN046578 fylgir erindinu. Stækkun : 31.8 ferm., 103,4 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 1 og 2 dags. 22. apríl 2014.