Sótt er um leyfi til að byggja svalir á 2. og 3. hæð á norðurhlið og innrétta gistiheimili á 2. hæð húss á lóð nr. 56 við Hverfisgötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. apríl 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. apríl 2014. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á lóð. Gjald kr. 9.500
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og leiðbeininga í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. apríl 2014.