Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi á efri hæð og í kjallara, bæta við hurð og glugga á austurhlið kjallara og innrétta gluggalaus rými í sökkli parhúss nr. 42 á lóðinni nr. 40-42 við Lofnarbrunn. Fyrirspurnarerindi sama efnis sem fékk jákvæða afgreiðslu byggingarfulltrúa þann 23. október 2012 fylgir erindinu. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi sem samþykkt var í borgarráði þann 10. maí 2007 fylgir erindinu. Gjald kr. 9.500