Sótt er um leyfi til að byggja stoðvegg á lóðarmörkum að Úlfarsbraut, sjá erindi BN037555, og hækka um 45 cm lóðarveggi austan og vestan parhúss á lóð nr. 24-26 við Gerðarbrunn. Umsögn skrifstofu rekstur- og umhirðu dags. 8. maí 2014, bréf frá eigendum ódagsett og samþykki á teikningu frá eiganda Gerðarbrunns 22 fylgir erindinu. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.