Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum, m.a. breytt innra skipulag í mhl. 01 og 02, stækkun kvista, byggingu bakhúss að lóðamörkum, fækkun íbúða í mhl. 01 úr þrem í tvær og byggja tvennar svalir á bakhlið húss á lóð nr. 10 við Þórsgötu. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. febrúar 2014. Áður gerð stækkun kvists: 11 rúmm. Áður gerð viðbygging á baklóð: 12,4 ferm., 56,3 rúmm. Samtals 12,4 ferm., 67,3 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.