Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum innanhúss, m.a. innrétting á verslun, móttöku fyrir hestaleigu, hestakerruleigu, kaffistofu í flokki II og dýralæknaráðgjöf í Dýraspítala Watsons á lóð nr. 9 við Brekknaás. Umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 24. febrúar 2014 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. apríl 2014 og umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 24. febrúar 2014. Einnig bréf frá eigendum Brekknaáss 9 ódagsett. Gjald kr. 9.500 + 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.