Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi BN046421, breytingar felast í að innrétta aðstöðu fyrir starfsfólk í kjallara, innrétta stærri móttöku og setustofu á 1. hæð og færa handlaugar á 2. hæð í gistiheimili á lóð nr. 24 við Grensásveg. Meðfylgjandi er bréf aðalhönnuðar dags. 14.4. 2014 og greinargerð burðarvirkishönnuðar dags. 28.2. 2014. Gjald kr. 9.500 + 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.