Sótt er um leyfi til að endurbyggja eldra timburhús og byggja "Mansard" hæð ofaná, einnig að byggja steinsteypta viðbyggingu , þrjár hæðir og kjallara á bakhlið og innrétta fimm íbúðir og verslunarrými í húsi á lóð nr. 19-19B við Laugaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. janúar 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2014. Stækkun: 310 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og til kynningar hjá umhverfis- og skipulagsráði.