Sótt er um leyfi til að endurbyggja eldra hús, byggja steinsteypta viðbyggingu með kjallara á bakhlið og innrétta fimm íbúðir og verslunarrými í húsi á lóð nr. 17 við Laugaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. janúar 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2014. Áður samþykkt niðurrif (bakhús): 298,2 ferm. Stækkun: 350,7 ferm., 1.277,6 rúmm. Gjald kr. 9.500