Spurt er hvort leyft yrði að byggja u.þ.b. sex fermetra anddyri við norðurhlið, u.þ.b. sjö fermetra sólstofu við suðurhlið og tvo kvisti á norður- og suðurþekju einbýlishúss á lóðinni nr. 74 við Rauðagerði. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. nóvember 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2013.
Svar
Jákvætt. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2013.