Spurt er hvort leyft yrði að byggja 30 hesta hús og litla reiðskemmu til reiðkennslu á lóð nr. 9 við Brekknaás. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. desember 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. desember 2013.
Svar
Nei. Með vísan til umsagnar skipulagfulltrúa dags. 5. desember 2013.