Spurt er hvort leyft yrði að skipta einbýlishúsi í fjórar íbúðir, byggja bílgeymslu og stigahús að austurhlið, bæta við svölum á fyrstu og annarri hæð og byggja viðbyggingu á þakhæð hússins nr. 29 við Sóleyjargötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. nóvember 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. nóvember 2013.
Svar
Nei. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 7. nóvember 2013.