Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum þar sem gerð er grein fyrir innra skipulagi þar sem verið er að innrétta verslun og snyrtistofu í rými 0103, 0104 og 0105 í húsinu á lóð nr. 9 við Aðalstræti. Bréf frá hönnuði dags. 21. nóv. 2013 og aftur 25.okt. 2013 fylgir. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.