Sótt er um leyfi til að byggja nýja spennistöð í norðvesturhorni lóðar í stað annarrar í kjallara hússins, til að fella niður nýsamþykktan stoðvegg að Háaleitisbraut og breyta fyrirkomulagi lóðar, en við það fækkar bílastæðum um þrjú, sjá erindi BN045986 og BN046276, verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 1 við Ármúla. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. nóvember 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2013 og yfirlýsing Orkuveitu Reykjavíkur dags. 25. október 2013. Bílastæði á lóð eftir breytingu samtals 89. Spennistöð: 20,9 ferm., 72,1 rúmm. Gjald kr. 9.000