Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulag og byggja anddyri við norðurhlið einbýlishúss og jafnframt breyta innra fyrirkomulagi og byggja glerskála að norðurhlið bílskúrsins á lóðinni nr. 7 við Grundargerði. Samþykki nágranna í húsum nr. 9 við Grundargerði og nr. 41 við Akurgerði (á teikn.) fylgir erindinu. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 26. september 2013 fylgir erindinu. Stærð: Stækkun xx. Gjald kr. 9.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 1A, 2A og 3A síðast breytt 27. september 2013.