Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús á einni hæð klætt ljósum steinflísum á lóð nr. 98 við Haukdælabraut. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. október 2013 fylgir erindinu. Stærð: Íbúð 193,7 ferm., bílgeymsla 63,3 ferm. Samtals 256,9 ferm., 1.226,8 rúmm. B-rými 23,5 ferm. Gjald kr. 9.000