Spurt er hvort leyft yrði að breyta fyrirkomulagi, byggja svalir og starfrækja veitingahús í flokki 2 í einbýlishúsi á lóðinni nr. 26A við Frakkastíg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. september 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2013.
Svar
Jákvætt. Með vísan til leiðbeininga í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2013. Sækja þarf um byggingarleyfi.