Sótt er um leyfi til að byggja lagnakjallara undir bílgeymslu, sbr. erindi BN044180, ásamt tröppum með austurhlið við fjölbýlishúsið á lóð nr. 9 við Blönduhlíð. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á teikningu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. ágúst 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. júlí 2013. Stærðir stækkun: 35,8 ferm. og 84,8 rúmm. brúttó. Gjald kr. 9.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdráttar nr. A1 dags. 6. ágúst 2013.