Sótt er um leyfi til þess að byggja svalalokanir og klæða með sléttri álklæðningu suðurhlið hússins á lóðinni nr. 9-13 við Meistaravelli. Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 6. júlí 2013, viðgerðartillögur frá Verksýn dags. í mars 2013, minnisblað frá verkfræðistofunni EFLU dags. 14. mars 2013, fundargerð húsfélagsi dags. 6. nóvember 2012 og samþykki eigenda dags. 19. október 2012. Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa frá 29. júlí 2013 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. júlí 2013 fylgja með erindinu. Gjald kr. 9.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. júlí 2013.