Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri séreign (ósamþ. íbúð) í kjallara og núverandi innra fyrirkomulagi á fyrstu, annarri og þriðju hæð fjölbýlishússins á lóðinni nr. 7A við Ránargötu. Skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 5. apríl 2013 og afsalsbréf dags. 26. nóvember 1982 fylgja erindinu. Samþykki meðeigenda í húsi og samþykki eigenda Ránargötu 9A (vegna sorpgeymslu í undirgangi húsanna) fylgja erindinu á teikningum. Bréf hönnuðar dags. 9. júlí 2013 fylgir erindinu. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.