Spurt er hvort leyft yrði að breyta verslunar- og þjónusturýmum í íbúðarhúsnæði á annarri hæð hússins á lóðinni nr. 21-23 við Langarima. Bréf fyrirspyrjanda (ódags.) fylgir erindinu. Útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa frá 12. júlí 2013 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10 júlí 2013 fylgja erindinu.
Svar
Nei. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. júlí 2013.