Sótt er um leyfi til þess að starfrækja veitingaverslun (kökugallerý) í verslunar og þjónustuhúsi (matshl. 01, rými 0102) á lóðinni nr. 2 við Nethyl. Umboð eiganda dags. 7. júní 2013 fylgir erindinu. Bréf umsækjanda dags. 28. maí 2013 fylgir erindinu. Gjald kr. 9.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.