Sótt er um leyfi til að breyta notkun íbúðar 0201 og verslunar 0101 í gistiheimili í flokki II með sjö herbergjum, jafnframt er erindi BN045991 dregið til baka, einnig er sótt um að breyta glugga og hurðum á vesturhlið húss á lóð nr. 24 við Grensásveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. júní 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. júní 2013. Gjald kr. 9.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. júní 2013.