Sótt er um leyfi til þess að byggja sólskýli á nyrðri svölum á vesturhlið fyrstu hæðar hússins á lóðinni nr. 21 við Fjólugötu. Samþykki meðeiganda (á teikn.) fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. maí 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2013. Bréf umsækjanda dags. 24. júní 2013 fylgir erindinu. Stærð: Svalaskýli 4,3 ferm. og 10,3 rúmm. Gjald kr. 9.000
Svar
Frestað. Málinu vísað skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdráttar nr. 001 dags. 12. maí 2013.