Spurt er hvort leyft yrði að breyta skrifstofuhúsnæði í tvær til þrjár íbúðir á lóðinni nr. 9 við Frakkastíg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. júní 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. apríl 2013.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 26. apríl 2013.