Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 3. og 4. hæð þannig að kaffistofa er flutt frá 3. hæð upp á 4. hæð svo og að tvö fundarherbergi og gangur eru sameinuð í eitt rými í húsinu á lóð nr. 25 við Borgartún. Gjald kr. 9.000 + 9.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.