Spurt er hvort leyft yrði að byggja kvisti á norðurhlið, hækka og lengja kvist á suðurhlið og fá samþykkta íbúð á rishæð hússins nr. 78 við Njálsgötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. apríl 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2013.
Svar
Jákvætt. Ekki gerð athugasemd við erindið með vísan til skilyrða í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2013. Sækja þarf um byggingarleyfi.