Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. 2. og 3. hæð fyrir tímabundna starfsemi áfangaheimilis til þriggja ára með 39 herbergjum í húsinu á lóð nr. 10 við Héðinsgötu. Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2013 og bréf frá Forvarnardeild SHS dags. 22. apríl 2013. Gjald kr. 9.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði, bréfs forvarnardeildar SHS dags. 22. apríl 2013 og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 08. mars 2013.