Spurt er hvort leyft yrði að breyta innra fyrirkomulagi íbúðar 0201 og jafnframt byggja tvennar svalir á framhlið og einar svalir á bakhlið annarrar hæðar hússins nr. 17B við Skólavörðustíg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 04. apríl 2013 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 03. apríl 2013 fylgja erindinu.
Svar
Jákvætt. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 3. apríl 2013 og leiðbeininga á fyrirspurnarblaði. Sækja þarf um byggingarleyfi.