Sótt er um leyfi til að byggja við kjallarann og koma fyrir svölum á þaki viðbyggingarinnar og rífa niður núverandi bílskúr og byggja nýjan bílskúr með þaksvölum við húsið á lóð nr. 9 við Hávallagötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. mars 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. mars 2013. Niðurrif bílskúr 19,1 ferm 48,7 ferm. Stærð nýs bílskúrs: 39,8 ferm., 109,5 rúmm. Viðbygging 16,5 ferm., 45,4 rúmm. Samtals: 56.3 ferm., 154,9 rúmm. Gjald kr. 9.000 + 13.941
Svar
Frestað. Með vísan til leiðbeininga í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. mars 2013.