Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu, timburgrind klædd dökkgráu zinki, fyrir vörumóttöku og vinnu við leikmyndir ofan á smíðaverkstæði við austurhlið Þjóðleikhússins á lóð nr. 19 við Hverfisgötu. Erindi fylgir fundargerð frá Húsafriðunarnefnd dags. 10. júní 2012. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. mars 2013 fylgir erindinu.
Svar
Jákvætt. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. mars 2013. Sækja skal um byggingarleyfi