Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi kjallara og 1. hæðar veitingastaðar í flokki III þar sem komið er fyrir salerni, inndregin verönd sem samþykkt var 31. maí verði minnkuð og komið verður fyrir búningsherbergi þar sem sviðið var og það flutt til í húsinu á lóð nr. 22 við Tryggvagötu. Gjald kr. 9.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.