Sótt er um leyfi til þess að breyta atvinnuhúsnæði á annarri hæð í íbúð, koma fyrir svölum á suðurhlið og breyta gluggum á norðurhlið hússins (matshl. 03) á lóðinni nr. 30 við Baldursgötu. Samþykki meðeigenda í matshl. 03 dags. 15.11.2012 og 06.01.2013 (tölvupóstur) fylgir erindinu. Umsögn skipulagsstjóra dags. 28.09.2012 (v. fyrirspurnar) fylgir erindinu. Gjald kr. 8.500
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 0002, 0003 og 0004, dags. 22. október 2012.