Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt 2-3 hæða fjölbýlishús með 12 íbúðum og bílakjallara fyrir 12 bíla á lóð nr. 14-16 við Friggjarbrunn. Einnig er óskað eftir leyfi til að nota undanþáguákvæði í grein 17.1.2 í nýrri byggingareglugerð og fylgir greinargerð þar um dags. 26. nóvember 2012. Jafnframt er erindi BN037671 fellt úr gildi. Stærð: Kjallari: Bílgeymsla 349,2 ferm., geymslur 337,1 ferm., 1. hæð 568,3 ferm., 2. hæð 594,6 ferm., 3. hæð 385,6 ferm. Samtals 2.234,8 ferm., 6.994,5 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 594.353