Sótt er um leyfi til þess að útbúa franskar svalir á annarri hæð suðurhliðar fjölbýlishúss á lóðinni nr. 54A við Vesturgötu. Samþykki meðeigenda (í tölvubréfi dags. 13. og 14. nóvember 2012 og á teikningu dags. 15. nóvember 2012 fylgja erindinu. Jákvæð fyrirspurn BN0449654 fylgir erindinu um 60 cm djúpar svalir á suðurhlið ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 21. september 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 21. september 2012. Gjald kr. 8.500