Spurt er hvort leyfi fengist til að útbúa tvær íbúðir, þar sem íbúð efri hæðar verður 184 ferm., íbúð neðri hæðar 200 ferm. og taka í notkun óútgrafið rými um 110 ferm. í einbýlishúsinu á lóð nr. 47 við Rauðagerði. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. nóvember 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 16. nóvember 2012.
Svar
Nei. Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 16. nóvember 2012.