Spurt er hvort leyfi fáist til að breyta skúrþaki í mænisþak, síkka glugga, koma fyrir þakglugga og endurnýja klæðningu og einangra bílskúrinn á lóð nr. 19 við Hjallaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. nóvember 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 22. nóvember 2012.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.