Sótt er um leyfi til að stækka anddyri verslunar til norðaustur sem nemur skyggni með léttri lokun sem er fyrir, flóttahurð á norðvestur er færð til, innri breytingar, vatnsúðakerfi aðlagað breyttu fyrirkomulagi og afgirtu útisvæði er komið fyrir við móttökuhurð hússins á lóð nr. 3 við Fiskislóð. Bréf frá hönnuði dags. 6. nóv. 2012. Umboð eiganda dags. 6. nóv. 2012. Skýrsla brunahönnuðar dags. 22. okt. 2012. Stækkun: 16,9 ferm., 52,8 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 4.488
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.