Sótt er um leyfi til að innrétta fataherbergi og herbergi í rishæð koma fyrir kvist á norðurhlið og kvist og svalalokun vesturhlið í húsinu á lóð nr. 22 við Nökkvavog. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. nóvember 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. nóvember 2012. Stækkun: 10,2 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 867
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsstjóra dags. 19. nóvember 2012.