Sótt er um leyfi til að stækka kjallara til austurs og innrétta í honum eldhús og veitingasal fyrir 40 gesti og veitingaflokk II en á hæðinni og undir risi er íbúð í húsinu sem byggt var 1882 á lóðinni nr. 2 við Bókhlöðustíg. Meðfylgjandi er umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 26. október 2012 og Húsafriðunarnefndar dags. 29. október 2012 ásamt minnisblaði um brunavarnir frá verkfræðistofunni EFLU dags. 17. desember 2012. Stærðir: 365,4 ferm., 1.055,2 rúmm. Stækkun: 81,2 ferm., 306,2 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 26.027
Svar
Synjað. Með vísan til afgreiðslu Umhverfis- og skipulagsráðs frá 23. janúar 2013.