Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja yfir svalir og fyrir áður gerðri tröppu frá svölum niður í garð í raðhúsi nr. 8 á lóð nr. 2-40 3-21 við Brúnaland. Samþykki fylgir frá raðhúsi 2 til 10 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. október 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 23. október 2012.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi. og með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 23. október 2012.