Vegna eignaskiptasamnings er sótt um samþykki fyrir lítils háttar breytingum á innra fyrirkomulagi í kjallara hússins á lóðinni nr. 8 við Selvogsgrunn. Samþykki meðeigenda v. nýrrar eignaskiptayfirlýsingar dags. 16. október 2012 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. október 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 24. október 2012. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.