Sótt er um samþykki á reyndarteikningum sem felast fyrst og fremst í að eldhús eru færð frá útvegg inn í stofu og herbergjum fjölgað í íbúðum 1.01 - 1.04 - 1.05 - 1.06 - 2.04 - 2.05 - 2.06 - 3.04 - 3.05 - 4.01 - 4.04 - 4.05 - 4.07 og 5.07 og gerðar eru breytingar á eignarhaldi nokkurra geymslna í kjöllurum og merkingum þeirra breytt í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 3-5 við Mánatún. Meðfylgjandi er bréf aðalhönnuðar dags. 22.10. 2012 og samþykki eigenda dags. 22.10. 2012. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.