Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir á suðurhlið fyrstu, annarrar og þriðju hæðar og útbúa sérafnotaflöt fyrir kjallaraíbúð í húsinu á lóðinni nr. 4 við Hrefnugötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. júní 2012 fylgir erindinu (v. fyrirspurnar, sjá fyrirspurnarerindi BN044556) ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 6. júní 2012. Samþykki meðeigenda dags. 18.09.2012 fylgir erindinu. Gjald kr. 8.500
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu Vísað til uppdráttar dags. 20. júní 2012.