Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja skýli sem er ca. 22 ferm. að stærð sem nýta á sem hjólageymslu, geymslu fyrir garðverkfæri og endurvinnslu sorps og á að vera staðsett fyrir innan bílastæði út við götu á lóð nr. 37A við Bauganes. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 28. september 2012 fylgir erindinu. Yfirlýsing nágranna og teikningar á A4 fylgir.
Svar
Jákvætt. Ekki gerð athugasemd að fyrirspyrjandi láti gera breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað sem grenndarkynnt verður berist hún.