Spurt er hvort leyfi fengist til að útbúa franskar svalir á 2. hæð suðurhliðar á fjölbýlishúsið á lóð nr. 54A við Vesturgötu. Neikvæð fyrirspurn BN044839 fylgir erindinu um 60 cm djúpar svalir á suðurhlið ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 21. september 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 29. september 2012.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum með vísan til umsagna skipulagsstjóra dags. 29. september 2012. Sækja þarf um byggingarleyfi.