Sótt er um leyfi til þess að innrétta veitingastað í flokki lll á fyrstu hæð hússins á lóðinni nr. 20B við Laugaveg. Innréttuð er aðstaða fyrir starfsfólk veitingastaðarins á annarri hæð hússins. Hámarksgestafjöldi er fimmtíu og fimm manns. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. júlí 2012 (vegna fyrirspurnarerindis BN044764) fylgir erindinu. Staðfesting og samþykki hönnuðar í tölvubréfi dags. 27.október 2012 fylgir erindinu. Hljóðvistarskýrsla dags. 22.10.2012 fylgir erindinu. Yfirlýsing f.h. eiganda dags.18.10.2012 fylgir erindinu. Gjald kr. 8.500
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.