Sótt er um leyfi til þess að fella niður innra hlið í undirgangi, stækka íbúð 0401 á fjórðu hæð fram í stigahús og breyta innra fyrirkomulagi sömu íbúðar í húsinu á lóðinni nr. 8 við Laugaveg. Samþykki meðeigenda (ódags.) fylgir erindinu. Ný skráningartafla fylgir erindinu. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.