Sótt er um samþykki fyrir breyttu innra fyrirkomulagi og áður gerðri íbúð í kjallara fjölbýlishúss á lóðinni nr. 88 við Miklubraut. Virðingargjörð dags. 6. febrúar 1952 fylgir erindinu. Afsalsbréf dags. 7. mars 1972 fylgir erindinu. Íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 18. maí 2012 fylgir erindinu. Samþykki meðeigenda (ódags.) fylgir erindinu. Ný skráningartafla fylgir erindinu. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.