Sótt er um leyfi til þess að sameina tvo kvisti á norðurhlið, byggja svalir á vesturhlið og breyta innra fyrirkomulagi íbúðar á þriðju hæð (rishæð) hússins á lóðinni nr. 58 við Flókagötu. Umsögn skipulagsstjóra dags. 25.01.2012 (v. fyrirspurnar BN044018) fylgir erindinu. Samþykki meðeigenda (á teikn.) fylgir erindinu. Ný skráningartafla fylgir erindinu. Stærð: Húsið er nú skráð 1178,3 rúmm. og 401,0 ferm. en verður eftir breytingu skráð 1189,2 rúmm. og 429,9 ferm. Stækkun húss: 10.9 rúmm. og 28,9 ferm. Gjald kr. 8.500 + 927
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdráttar A-001 dags. 20. maí 2012.